Everyday Muse - Pre- glued Custer
Skráðu emailð þitt og við látum þig vita þegar varan kemur aftur
Skráðu emailið þitt og við látum þig vita um leið og varan kemur til okkar.
Pre-glued Clusters
Fáðu falleg, endingargóð augnhár á nokkrum mínútum - með áföstu, sérþróuðu lími sem grípur strax og heldur örugglega. 40 stk augnhárabútar eru í boxinu í lengdum 10mm-14mm. 3-4 ásetningar í einu boxi.
Háþróuð gel formúla umlykur augnhárin og veitir sterkt hald í allt að 7-10 daga, sambærilegt við okkar hefðbundna augnháralím, en með mun einfaldari og hraðari notkun. Límið skilur engar leifar eftir, klístrast ekki og er mjög auðvelt að fjarlægja.
Augnhárin eru vatnsheld og halda sér fallega við daglega notkun, jafnvel við raka, sturtu eða vind.
Ásetning:
- Fjarlægðu augnhárin úr boxinu og forðastu að snerta límið.
- Raðaðu augnhárunum undir þín náttúrulegu augnhár, nálægt vatnslínunni en forðastu að setja augnhárin á vatnslínuna sjálfa.
- Klemmdu augnhárunum vel saman við þín eigin augnhár með non sticky augnháratöng eða með hreinum fingrum. Það er mjög mikilvægt að klemma límröndinni vel saman við þín náttúrulegu augnhár svo endingin verði sem best. Gott er að endurtaka daglega ef þörf er á.
Fjarlæging:
- Byrjaðu í innri krók og dragðu þau varlega og rólega af.
Þó að límið okkar sé sterkt og tryggir langvarandi hald er mjög auðvelt að fjarlægja augnhárin á öruggan hátt. Þau skaða ekki þín eigin augnhár.
Fáðu fullkomin augnhár á nokkrum mínútum - einfalt að setja á, auðvelt að fjarlægja og alltaf fallegt ✨
Við bjóðum uppá sendingar með bæði Dropp og Íslandspóst, verð skv. gjaldskrá sendingaraðila.
Einnig er hægt að sækja pantanir í verslun okkar í Firði Hafnarfirði 1.hæð