Skilmálar

Skilmálar Daria.is

Rekstraraðili

Daria.is er rekin af:

Daría ehf.
Kennitala: 630997-2919

Reikningsnúmer: 0142-26-010960
VSK-númer: 56039
Fjarðargata 13–15, 220 Hafnarfjörður
Verslun: Daría & Herrar, 1. hæð í verslunarmiðstöðinni Firði
Netfang: daria@daria.is
Sími: 781 6645

Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum í netversluninni Daria.is. Um réttindi neytenda gilda íslensk lög, meðal annars lög nr. 16/2016 um neytendasamninga og lög nr. 48/2003 um neytendakaup.

Verð og vöruupplýsingar

Öll verð á Daria.is eru gefin upp í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt þar sem við á.

Sendingarkostnaður og annar viðbótarkostnaður, ef einhver er, kemur fram áður en pöntun er staðfest.

Við leggjum áherslu á að verð, lagerstaða og aðrar upplýsingar á vefnum séu réttar. Komi í ljós augljós villa í verði, vörulýsingu eða lagerstöðu höfum við samband við viðskiptavin eins fljótt og auðið er og leysum málið í samræmi við gildandi lög.

Greiðsla

Hægt er að greiða með þeim greiðslumátum sem birtast í greiðsluferli Daria.is hverju sinni.

Viðskiptavinur sér endanlegt heildarverð, þar á meðal sendingarkostnað ef við á, áður en pöntun er staðfest.

Afhending og sendingar

Við sendum pantanir innanlands með þeim sendingarmátum sem í boði eru í greiðsluferlinu hverju sinni, meðal annars með Dropp og Póstinum.

Einnig er hægt að velja að sækja pöntun í verslun okkar, Daría & Herrar í Firði, Hafnarfirði.

Við leggjum áherslu á að afgreiða pantanir eins fljótt og mögulegt er. Ef ekki hefur verið samið um sérstakan afhendingartíma skal vara afhent án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 30 dögum eftir að gengið var frá kaupunum.

Sé vara ekki til á lager eða ófyrirséð töf verður á afhendingu höfum við samband við viðskiptavin eins fljótt og auðið er.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að gefa upp réttar upplýsingar um nafn, heimilisfang, símanúmer og aðrar upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna afhendingar. Ef sending kemur til baka vegna rangra eða ófullnægjandi upplýsinga sem viðskiptavinur gaf upp getur viðskiptavinur þurft að greiða raunverulegan kostnað við nýja sendingu.

Áhætta við sendingu

Þegar Daría sendir vöru með sendingarmáta sem boðinn er af Daríu flyst áhættan af því að varan týnist eða skemmist almennt ekki yfir til viðskiptavinar fyrr en hann, eða þriðji aðili sem hann hefur tilgreint annar en flutningsaðili, hefur tekið vöruna í sína vörslu.

Ef viðskiptavinur velur sjálfur flutningsaðila sem Daría bauð ekki sem sendingarmöguleika getur áhættan færst yfir þegar varan er afhent þeim flutningsaðila, eftir því sem lög kveða á um.

Ef sending týnist eða skemmist áður en áhættan hefur færst yfir til viðskiptavinar skal hafa samband við okkur á daria@daria.is og við tökum málið til meðferðar.

14 daga réttur til að falla frá netkaupum

Við kaup á Daria.is hefur neytandi almennt 14 daga til að falla frá kaupum án þess að þurfa að gefa upp ástæðu.

Fresturinn hefst þegar neytandi, eða þriðji aðili sem hann hefur tilgreint annar en flutningsaðili, tekur vöruna í sína vörslu.

Ef ein pöntun inniheldur margar vörur sem eru afhentar á mismunandi tímum hefst fresturinn almennt þegar síðasta varan hefur verið móttekin.

Hvernig er fallið frá kaupum?

Til að nýta réttinn þarf viðskiptavinur að senda Daríu skýra tilkynningu um að hann vilji falla frá kaupunum áður en 14 daga fresturinn rennur út.

Einfaldast er að senda tölvupóst á:

daria@daria.is

Gott er að taka fram:

  • nafn viðskiptavinar,

  • pöntunarnúmer,

  • hvaða vöru eða vörum er skilað,

  • dagsetningu tilkynningar.

Einnig er heimilt að nota staðlað afturköllunareyðublað Neytendastofu. Notkun þess eyðublaðs er þó ekki skilyrði svo lengi sem tilkynning viðskiptavinar er skýr og ótvíræð.

Staðlað afturköllunareyðublað Neytendastofu

Endursending vöru

Eftir að viðskiptavinur hefur tilkynnt um að hann falli frá kaupum skal hann senda eða afhenda vöruna Daríu án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynningin var send.

Vöru má einnig skila í verslun okkar í Firði, Hafnarfirði.

Viðskiptavinur ber beinan kostnað af endursendingu vegna afturköllunar nema Daría hafi sérstaklega samþykkt að greiða hann eða annað hafi verið tekið fram við kaupin.

Fyrir stórar eða fyrirferðarmiklar vörur sem ekki er hægt að endursenda með venjulegum póst- eða pakkaþjónustum gilda þær upplýsingar um áætlaðan skilakostnað sem veittar eru áður en gengið er frá kaupum.

Ástand vöru við skil

Viðskiptavini er heimilt að skoða og prófa vöru að því marki sem nauðsynlegt er til að staðfesta eðli, eiginleika og virkni hennar, með svipuðum hætti og almennt væri unnt í verslun.

Ef meðferð vörunnar hefur verið meiri en nauðsynlegt er til slíkrar skoðunar getur viðskiptavinur borið ábyrgð á þeirri verðrýrnun sem af því hlýst.

Við óskum eftir að vörum sé skilað hreinum, með merkimiðum og í upprunalegum umbúðum þegar það á við. Skortur á upprunalegum umbúðum eða merkimiðum fellir þó ekki sjálfkrafa niður lögbundinn afturköllunarrétt, nema meðferð vörunnar hafi leitt til verðrýrnunar eða undantekning frá afturköllunarrétti eigi við.

Undantekningar frá afturköllunarrétti

Afturköllunarréttur gildir ekki í þeim tilvikum sem undanskilin eru samkvæmt lögum.

Þar á meðal getur verið vara sem er innsigluð og ekki er hægt að skila vegna lýðheilsu- eða hreinlætissjónarmiða þegar innsiglið hefur verið rofið eftir afhendingu.

Undantekningin á aðeins við þegar skilyrði laganna eru uppfyllt og það að umbúðir hafi einfaldlega verið opnaðar þýðir ekki sjálfkrafa að lögbundinn afturköllunarréttur falli niður.

Aðrar lögbundnar undantekningar geta meðal annars átt við um sérframleiddar eða sérsniðnar vörur.

Endurgreiðsla vegna afturköllunar netkaupa

Þegar lögbundinn réttur til að falla frá netkaupum er nýttur endurgreiðir Daría þær greiðslur sem falla undir afturköllunina samkvæmt lögum.

Ef allri pöntuninni er skilað felur það meðal annars í sér kaupverð vörunnar og þann venjulega sendingarkostnað sem lög gera ráð fyrir að skuli endurgreiddur.

Ef viðskiptavinur valdi sérstaklega dýrari afhendingarmáta en ódýrasta almenna afhendingarmátann sem Daría bauð er Daríu ekki skylt að endurgreiða þann viðbótarkostnað.

Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að Daríu barst tilkynning um afturköllun.

Daríu er þó heimilt að halda eftir endurgreiðslu þar til varan hefur borist aftur eða viðskiptavinur hefur lagt fram sönnun fyrir því að hún hafi verið send til baka, hvort sem gerist fyrr.

Endurgreiðsla fer almennt fram með sama greiðslumáta og notaður var við upphaflegu kaupin nema viðskiptavinur samþykki sérstaklega annað og verði ekki fyrir kostnaði vegna þess.

Endurgreiðsla miðast við þá fjárhæð sem viðskiptavinur greiddi fyrir vöruna en ekki verð vörunnar á þeim degi sem henni er skilað.

Útsala eða verðlækkun eftir kaup skerðir ekki lögbundinn afturköllunarrétt vegna netkaupa.

Gölluð eða röng vara

Ef vara er gölluð, skemmd við afhendingu eða önnur vara berst en sú sem pöntuð var skal hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er á daria@daria.is.

Réttindi vegna galla fara samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.

Eftir atvikum getur neytandi átt rétt á úrbótum, nýrri afhendingu, afslætti, riftun eða skaðabótum samkvæmt skilyrðum laganna.

Úrbætur eða ný afhending vegna galla skulu fara fram án kostnaðar og verulegs óhagræðis fyrir neytanda og innan hæfilegs tíma.

Lögbundinn kvörtunarfrestur vegna galla er almennt allt að tvö ár frá afhendingu vöru og getur verið fimm ár þegar um er að ræða vöru sem ætlað er verulega lengri endingartími.

Þessi réttindi eru óháð 14 daga afturköllunarrétti vegna netkaupa.

Kaup í verslun

Lögbundinn 14 daga afturköllunarréttur vegna fjarsölu gildir ekki sjálfkrafa um vörur sem keyptar eru í sjálfri versluninni.

Daríu er heimilt að veita viðskiptavinum rýmri skila- eða skiptirétt vegna kaupa í verslun samkvæmt skiptireglum fyrirtækisins hverju sinni.

Slíkar reglur hafa ekki áhrif á lögbundin réttindi neytenda vegna galla á vöru.

Kvartanir og ágreiningur

Ef upp kemur vandamál eða ágreiningur hvetjum við viðskiptavini fyrst til að hafa samband við okkur á daria@daria.is svo hægt sé að leitast við að leysa málið.

Neytandi getur einnig, að uppfylltum skilyrðum, leitað með ágreiningsmál til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Persónuupplýsingar

Meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt friðhelgisstefnu Daríu og gildandi persónuverndarlögum.

Nánari upplýsingar um söfnun, vinnslu, varðveislu og réttindi einstaklinga vegna persónuupplýsinga má finna í friðhelgisstefnu Daria.is.

Gildandi lög

Um viðskipti við Daríu gilda íslensk lög.

Skilmálar þessir takmarka ekki þau lögbundnu réttindi sem neytendur njóta samkvæmt ófrávíkjanlegum ákvæðum íslenskra laga.