Skráðu emailið þitt og við látum þig vita um leið og varan kemur til okkar.
Fallegur og elegant svartur blúndubolur frá Culture. Karla bolurinn er með fíngerðu blúnduyfirlagi sem gefur honum fágað og kvenlegt yfirbragð.
Bolurinn er með kringlóttu hálsmáli, stuttum víðum ermum og lausu, beinu sniði. Hálfgegnsæjar blúndur að framan og við faldinn setja fallegan svip á bolinn og gera hann einstaklega glæsilegan.
Mjúk og teygjanleg modalblanda gerir bolinn þægilegan í notkun. Fullkominn með gallabuxum fyrir hversdagslegt útlit eða fínni buxum og pilsi við sérstök tilefni.
Efni: 48% modal, 48% pólýester, 4% elastan.
Litur: Meteorite (svartur).
Snið: Laust, beint snið.
Ermar: Stuttar og víðar.
Við bjóðum uppá sendingar með bæði Dropp og Íslandspóst, verð skv. gjaldskrá sendingaraðila.
Einnig er hægt að sækja pantanir í verslun okkar í Firði Hafnarfirði 1.hæð