Skráðu emailið þitt og við látum þig vita um leið og varan kemur til okkar.
Glæsilegur og kvenlegur svartur glimmerkjóll frá Cream. Yrsa kjóllinn er úr mjúku og teygjanlegu efni með fallegri glitrandi áferð sem gefur honum fágað og hátíðlegt yfirbragð.
Kjóllinn er með víxllögðu hálsmáli, löngum ermum og fallegu A-laga sniði sem víkkar niður. Hnésíð lengdin og létt útvíkkaður faldur gera hann bæði glæsilegan og þægilegan í notkun. Kjóllinn er með fóðri að innan.
Fullkominn fyrir veislur, jólaboð og önnur hátíðleg tilefni. Einstaklega fallegur með hælaskóm og einföldum fylgihlutum.
Efni: 93% pólýamíð, 4% pólýester, 3% elastan.
Fóður: 100% pólýester.
Litur: Pitch Black (svartur).
Snið: A-laga snið með útvíkkuðum faldi.
Sídd: Hnésíður.
Ermar: Langar.
Við bjóðum uppá sendingar með bæði Dropp og Íslandspóst, verð skv. gjaldskrá sendingaraðila.
Einnig er hægt að sækja pantanir í verslun okkar í Firði Hafnarfirði 1.hæð