Skráðu emailið þitt og við látum þig vita um leið og varan kemur til okkar.
FERSKUR. FLAUELSMJÚKUR. MUNAÐARFULLUR.
Coco Santal er ilmur fyrir öll kyn og ný túlkun á hinum vinsæla Blackened Santal frá RAAW Alchemy. Mjúkir viðartónar og fersk kókoshneta renna saman við hlýjan moskus sem liggur þétt við húðina.
Í hjarta ilmsins mætast ferskleiki og dýpt. Léttur kókosilmur, hreinn og náttúrulegur án þess að vera sætur, blandast mjúkum, rjómakenndum sandelviði. Þurr sedrusviður gefur ilminum festu og yfirvegaðan styrk, á meðan hlýr moskus umvefur hann með mjúkri og persónulegri áferð.
Ferskir og saltir undirtónar leynast í bakgrunni, en samspil kókoshnetu, viðar og moskuss einkennir ilminn. Útkoman er látlaus, nútímalegur og seiðandi ilmur.
Coco Santal lætur lítið yfir sér en dregur þig að sér. Fersk kókoshneta, hlýir viðartónar og mjúkur moskus blandast húðinni og gera ilminn að þínum eigin.
Ilmnótur: Bergamót, vatnstónar, fersk kókoshneta, sjávarsalt, sjávartónar, sedrusviður, mjúkur sandelviður, moskus og vetiver.
Við bjóðum uppá sendingar með bæði Dropp og Íslandspóst, verð skv. gjaldskrá sendingaraðila.
Einnig er hægt að sækja pantanir í verslun okkar í Firði Hafnarfirði 1.hæð