Sleep Tight Næturmaski – 50ml
Skráðu emailð þitt og við látum þig vita þegar varan kemur aftur
Skráðu emailið þitt og við látum þig vita um leið og varan kemur til okkar.
SLEEP TIGHT er kröftugur andlitsmaski sem endurnærir húðina og lífgar upp á hana yfir nóttina, svo hún vakni björt, fersk og tilbúin fyrir daginn. Þessi undra maski inniheldur 10% C-vítamín, öflugt andoxunarefni sem örvar blóðflæði, og mjólkurþistil (e. Milk Thistle) sem hjálpar til við að koma í veg fyrir niðurbrot á kollageni og elastíni.
Gúrkuþykkni (e. Cucumber Extract) dregur úr ertingu á meðan hýalúrónsýra, sykurefni (e. Isomerate Complexes), glýkógen og glýserín vinna saman að því að viðhalda hámarks rakastigi húðarinnar.
Helstu eiginleikar:
- Öflug andoxun: 10% C-vítamín gefur húðinni aukinn ljóma og jafnar tóninn.
- Viðgerð á varnarlagi: Styður við náttúrulegt varnarlag húðarinnar og endurbyggir það.
- Styrktaruppbygging: Mjólkurþistill verndar kollagen og elastín húðarinnar, sem stuðlar að auknum stinnleika.
- Djúp rakagjöf: Einstök blanda rakaefna sem læsir raka inni í húðinni yfir nóttina.
Við bjóðum uppá sendingar með bæði Dropp og Íslandspóst, verð skv. gjaldskrá sendingaraðila.
Einnig er hægt að sækja pantanir í verslun okkar í Firði Hafnarfirði 1.hæð