Skráðu emailið þitt og við látum þig vita um leið og varan kemur til okkar.
NO VACANCY hand- og líkamskrem
Létt og rakagefandi hand- og líkamskrem sem skilur húðina eftir silkimjúka. Kremið smýgur auðveldlega inn í húðina og inniheldur nærandi innihaldsefni sem hjálpa til við að viðhalda raka og draga úr þurrki.
Kremið ilmar af No Vacancy, fáguðum og frísklegum ilmi með tónum af pomelo, viði, sítrus, bergamottu og ambri.
Stærð: 500 ml í glerflösku.
NOTKUN
Berið ríkulegt magn á hreina húð og nuddið inn með fingurgómunum, frá hálsi og niður að tám. Veitið þurrum svæðum sérstaka athygli, svo sem olnbogum, hnjám, fótum og höndum. Notið daglega eða eftir þörfum.
NÆRANDI INNIHALDSEFNI
Aloe vera
Hjálpar til við að gefa húðinni raka og hefur kælandi og róandi áhrif.
Sheasmjör
Nærir húðina og hjálpar henni að halda raka. Myndar verndandi lag sem dregur úr þurrki og skilur húðina eftir mjúka.
Pomelo
Gefur frískan sítrusilm og inniheldur náttúruleg andoxunarefni.
Sandelviður
Gefur hlýjan viðarilm sem skapar fallegt jafnvægi við fríska sítrustónana.
Kókosolía
Mýkir húðina og hjálpar til við að viðhalda raka hennar.
100% vegan.
98% lífræn og náttúruleg innihaldsefni samkvæmt framleiðanda.
INNIHALD (INCI)
Aqua (water), Caprylic/Capric Triglyceride, Aloe Barbadensis (aloe vera) Leaf juice, Glycerin, Cetearyl Alcohol, Glyceryl Stearate, Butyrospermum Parkii (shea) Butter, Cetyl Alcohol, Cocos Nucifera (coconut) Oil, Helianthus Annuus (sunflower) Seed Wax, Propanediol (and) Asparagopsis Armata Extract, Perfume (fragrance), Prunus Amygdalus Dulcis (Sweet Almond) Oil, Polyglyceryl-4 Caprate, Water (and) Cocos Nucifera (coconut) Fruit Juice, Gluconolactone (and) Sodium Benzoate, Xanthan Gum.
Við bjóðum uppá sendingar með bæði Dropp og Íslandspóst, verð skv. gjaldskrá sendingaraðila.
Einnig er hægt að sækja pantanir í verslun okkar í Firði Hafnarfirði 1.hæð