Skráðu emailið þitt og við látum þig vita um leið og varan kemur til okkar.
Glæsilegur og kvenlegur pallíettutoppur frá Cream í fallegum vínrauðum lit. Freyja toppurinn er skreyttur glitrandi pallíettum sem gefa honum fágað og hátíðlegt yfirbragð.
Toppurinn er með fíngerðum, stillanlegum hlýrum og fallegum blúndukanti sem setur rómantískan svip á útlitið. Beint snið og fóður að innan gera hann þægilegan í notkun.
Fullkominn við fínar buxur eða pils fyrir veislur og hátíðleg tilefni. Einnig einstaklega flottur undir blazer með gallabuxum fyrir afslappaðra en glæsilegt útlit.
Efni: 98% pólýester, 2% elastan.
Fóður: 100% pólýester.
Blúndur: 60% bómull, 40% pólýamíð.
Litur: Fudge (vínrauður).
Snið: Beint snið með stillanlegum hlýrum.
Við bjóðum uppá sendingar með bæði Dropp og Íslandspóst, verð skv. gjaldskrá sendingaraðila.
Einnig er hægt að sækja pantanir í verslun okkar í Firði Hafnarfirði 1.hæð