Skráðu emailið þitt og við látum þig vita um leið og varan kemur til okkar.
Glæsilegur og kvenlegur pallíettubolur frá Cream í fallegum ljósum kampavínslit. Shima bolurinn er skreyttur glitrandi pallíettum sem gefa honum fágað og hátíðlegt yfirbragð.
Bolurinn er með kringlóttu hálsmáli, hálfsíðum ermum og beinu, þægilegu sniði. Létt efnið og mjúkt fóður gera hann þægilegan í notkun.
Fullkominn við fínar buxur eða pils fyrir veislur og hátíðleg tilefni. Einnig einstaklega fallegur með gallabuxum og hælaskóm fyrir afslappaðra en glæsilegt útlit.
Efni: 100% pólýester.
Fóður: 95% viskós, 5% elastan.
Litur: Champagne Glitter (ljós kampavínslitur).
Snið: Beint snið.
Ermar: Hálfsíðar.
Við bjóðum uppá sendingar með bæði Dropp og Íslandspóst, verð skv. gjaldskrá sendingaraðila.
Einnig er hægt að sækja pantanir í verslun okkar í Firði Hafnarfirði 1.hæð