Skráðu emailið þitt og við látum þig vita um leið og varan kemur til okkar.
Glæsilegur og kvenlegur dökkblár veislukjóll frá Cream. Shima kjóllinn er skreyttur glitrandi pallíettum sem gefa honum einstaklega fallegt og hátíðlegt yfirbragð.
Kjóllinn er með kringlóttu hálsmáli, löngum hálfgegnsæjum ermum og fallegu sniði sem fellur vel að líkamanum. Fínlegar pallíetturnar og gegnsæjar ermar skapa glæsilega heild sem hentar fullkomlega fyrir veislur og önnur hátíðleg tilefni.
Einstaklega fallegur með hælaskóm og einföldum fylgihlutum þar sem kjóllinn fær að njóta sín.
Efni: 100% pólýester.
Litur: Night Sky (dökkblár).
Snið: Hefðbundið snið með örlítið víðum faldi.
Sídd: Hnésíður.
Ermar: Langar og hálfgegnsæjar.
Við bjóðum uppá sendingar með bæði Dropp og Íslandspóst, verð skv. gjaldskrá sendingaraðila.
Einnig er hægt að sækja pantanir í verslun okkar í Firði Hafnarfirði 1.hæð